Vefhönnun · Reykjavík
Vefsíður semvinna fyrir þig.
Við hönnum nútímalegar og vandaðar vefsíður fyrir íslensk fyrirtæki sem vilja skera sig úr.
SÍÐA Vefhönnun
Góð vefsíða á ekki bara að líta vel út. Hún á að skapa traust, segja réttu söguna og auðvelda viðskiptavinum að velja þig.
Við hjálpum íslenskum fyrirtækjum að byggja sterka og faglega ásýnd á netinu með einfaldri, nútímalegri og markvissri vefhönnun.
Þjónusta
Allt sem þarf til að koma fyrirtækinu þínu á netið.
- 01
Vefhönnun
Sérhannaðar vefsíður sem endurspegla fyrirtækið þitt og virka jafn vel í síma og tölvu.
- 02
Uppsetning
Við sjáum um tæknilega hlutann, lén, hýsingu og uppsetningu svo þú þurfir ekki að hafa áhyggjur af því.
- 03
Leitarvélar
Vefsíðan er byggð með góða grunnuppsetningu fyrir Google og aðrar leitarvélar.
- 04
Mánaðarleg umsjón
Við getum séð um síðuna eftir að hún fer í loftið, haldið henni uppfærðri og aðstoðað með breytingar þegar þörf er á.
Einfalt ferli. Vandaður árangur.
- Persónuleg þjónusta
- Beint samband og einfalt ferli frá fyrstu hugmynd að fullbúinni síðu.
- Sérsniðin hönnun
- Hver síða er byggð með fyrirtækið, viðskiptavinina og markmiðin í huga.
- Hönnuð fyrir öll tæki
- Vefsíðan lítur vel út og virkar vel í síma, spjaldtölvu og tölvu.
- Við sjáum um tæknina
- Þú getur einbeitt þér að fyrirtækinu á meðan við sjáum um vefsíðuna.
Ferlið
Frá hugmynd að fullbúinni síðu.
- 01
Samtalið
Við byrjum á að kynnast fyrirtækinu, þjónustunni og því sem þú vilt ná fram.
- 02
Hönnunin
Við mótum útlit og uppbyggingu sem passar við fyrirtækið og vörumerkið.
- 03
Uppsetning
Við byggjum síðuna, fínstillum hana fyrir mismunandi tæki og setjum upp nauðsynlega virkni.
- 04
Síðan fer í loftið
Þegar allt er tilbúið sjáum við um að koma síðunni í loftið og getum haldið áfram að sjá um hana eftir það.
Vefhönnun þarf ekki að vera flókin.
SÍÐA Vefhönnun hjálpar íslenskum fyrirtækjum að eignast faglega og nútímalega vefsíðu án þess að ferlið verði óþarflega flókið.
Markmiðið er einfalt: að búa til vefsíður sem líta vel út, virka vel og gera fyrirtækinu auðveldara að ná til viðskiptavina.
Ertu með verkefni í huga?
Hver vefsíða er mismunandi. Hafðu samband og fáðu tilboð sem miðast við þitt fyrirtæki.
Eigum við að gera eitthvað flott saman?
Segðu okkur aðeins frá fyrirtækinu þínu og við höfum samband.
